Íslenski boltinn

Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stjörnukonur taka á móti Blikum í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins,
Stjörnukonur taka á móti Blikum í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins, vísir/diego

Stórleikur sextán liða úrslita Mjólkurbikars kvenna í fótbolta er viðureign Stjörnunnar og Breiðabliks. Dregið var í hádeginu í dag.

Bikarmeistarar Víkings fara í Mosfellsbæinn og mæta þar Aftureldingu sem leikur í Lengjudeildinni.

Auk leiks Stjörnunnar og Breiðabliks eru tveir aðrir innbyrðis leikir liða úr Bestu deildinni á dagskrá í sextán liða úrslitunum. Tindastóll fær Þór/KA í heimsókn í Norðurlandsslag og Fylkir sækir Þrótt heim.

Leikinir í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins fara fram 18. og 19. maí. 

Leikirnir í sextán liða úrslitum

  • Stjarnan - Breiðablik
  • Tindastóll - Þór/KA
  • FH - FHL
  • Afturelding - Víkingur
  • Þróttur - Fylkir
  • Grótta - Keflavík
  • Grindavík - ÍA
  • Valur - Fram



Fleiri fréttir

Sjá meira


×